Skip to content

ÉG SEL FASTEIGNIR OG GERI ÞAÐ VEL


Ég er löggiltur fasteignasali hjá LIND fasteignasölu í Kópavogi og annast milligöngu fasteignaviðskipta um land allt. Ég er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík með áherslu á lögfræði, menntun sem nýtist vel í mínu starfi.

Ég hef starfað við fasteignasölu frá árinu 2012 og hef víðtæka reynslu af söluferli fasteigna og samningagerð. Hlutverk mitt er að leiða saman kaupendur og seljendur fasteigna með það að markmiði að tryggja örugg og farsæl viðskipti þar sem hagsmunir kaupenda og seljenda fara saman.

Ég legg ríka áherslu á að hver eign njóti sín sem best á markaði og býð því upp á ráðgjöf og aðstoð við undirbúning og stíliseringu fyrir myndatöku og sölu. Markviss framsetning getur haft veruleg áhrif á fyrstu sýn kaupenda, aukið eftirspurn og styrkt stöðu eignarinnar á markaði. Með reynslu, góðri rýmisvitund og auga fyrir smáatriðum hjálpa ég seljendum að draga fram helstu kosti eignarinnar og hámarka sölumöguleika hennar.

Ég veiti persónulega og faglega þjónustu með áherslu á traust, fagmennsku og árangur og er viðskiptavinum mínum til staðar í gegnum allt söluferlið.

Heilindi, dugnaður og vinnusemi eru mín einkunnarorð. Reynsla mín og þekking tryggir viðskiptavinum mínum farsæl og örugg fasteignaviðskipti.

Ég hlakka til að vinna með þér, kveðja Þórey